Tíuþúsundkallinn í umferð á morgun

Már Guðmundsson seðlabankastjóri með 10.000 króna seðil.
Már Guðmundsson seðlabankastjóri með 10.000 króna seðil. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Hafi einhverjir beðið þess óþreyjufullir að fylla veskið brakandi ferskum 10 þúsund króna seðlum þá er biðin senn á enda því nýju seðlarnir fara í almenna dreifingu á morgun. Már Guðmundsson seðlabankastjóri mun afhenda Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra seðil númer eitt formlega til varðveislu.

Athöfnin verður klukkan 16 en seðillinn verður aðgengilegur í hluta bankaútibúa frá og með morgundeginum. Ekki er þó búist við almennri dreifingu í hraðbönkum fyrst um sinn.

Tíu þúsund króna seðillinn er fyrsti nýi seðillinn sem settur er í umferð frá árinu 1995, en þá var tvö þúsund króna seðill settur í umferð. Þar áður var fimm þúsund króna seðill settur í umferð árið 1986. Þúsund króna seðillinn sem notaður er var settur í umferð árið 1984 og 500 króna seðillinn eftir myntbreytinguna árið 1981.

Þeir seðlar sem nú eru í umferð eru í nokkru frábrugðnir þeim sem fyrst voru prentaðir, en þar munar mest um nýja öryggisþætti og atriði sem styrkja seðlana og gera þá endingarbetri. Allir þessir seðlar eru hannaðir af Kristínu Þorkelsdóttur myndlistarkonu. Meðhönnuður hennar er Stephen A. Fairbairn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert