Björgunarsveitir fundu nú fyrir skömmu rjúpnaskytturnar tvær sem leitað var á Höfuðreirarmúla. Voru mennirnir þá staddir austan undir Lambafjöllum og reyndust báðir heilir á húfi.
Þetta er þó ekki eina útkallið vegna rjúpnaskyttna sem björgunarsveitirnar á svæðinu hafa fengið í dag því áður en leitin hófst í Höfuðreirarmúla barst beiðni um aðstoð frá skyttum sem höfðu fest bíl sinn og brotið drifskaftið svo þeir komust ekki lengra. Þeir voru látnir bíða á meðan á leitinni stóð en sveitirnar eru nú á leið til þeirra.