Hjörvar Steinn Grétarsson er stórmeistari í skák. Hann vann makedónska stórmeistarann Vasile Sanduleac í sjöundu og síðustu umferð EM taflfélaga sem fram fór í Rhodos í dag. Hjörvar hlaut 5 vinninga í 7 skákum og samsvaraði árangur hans 2607 skákstigum.
Hjörvar verður þar með þrettándi íslenski stórmeistarinn, að því er fram kemur á skak.is.
Áður hafði hann náð stórmeistaraáfanga á EM landsliða í Porto Carras 2011. Hjörvar verður formlega útnefndur stórmeistari af hálfu FIDE á næstum vikum.
„Verð bara með aðeins stærra bros“