Opnað hefur verið fyrir innsetningu hugmynda fyrir verkefnið „Betri hverfi 2014“ á vefnum Betri Reykjavík, en hægt verður að senda inn hugmyndir fram til 1. desember næstkomandi.
Á síðustu tveimur árum hafa íbúar Reykjavíkur haft tækifæri til þess að senda inn hugmyndir að nýjum verkefnum til að fegra og bæta hverfi borgarinnar í gegnum vefsíðuna. Farið er yfir allar hugmyndir og þær metnar að verðleikum og kostnaði.
Hverfisráð borgarinnar hafa síðan hönd í bagga með því hvaða hugmyndum er stillt upp til rafrænna hverfakosninga, en á síðustu tveimur árum hafa íbúar forgangsraðað yfir 200 verkefnum í slíkum kosningum sem Reykjavíkurborg hefur framkvæmt. Sum verkefnanna sem kosin voru til framkvæmda á þessu ári eru enn á framkvæmdastigi en verkefnin sem kosin voru árið 2012 hafa þegar verið framkvæmd.
Reykjavíkurborg hefur alls varið 600 milljónum króna til verkefnanna á síðastliðnum tveimur árum og verður á næsta ári um 300 milljónum króna varið til framkvæmda á verkefnum í hverfum sem íbúar kjósa sér.
Íbúar eru hvattir til að taka þátt í hugmyndavalinu strax á fyrsta stigi, en það geta þeir gert með því að fylgjast með innsendum hugmyndum á vefnum. Þar er hægt að styðja hugmyndir og skrifa rök með eða á móti