Leikhúsgestir sendir heim

Gestir þurftu að yfirgefa sýninguna á Óvitum í dag vegna …
Gestir þurftu að yfirgefa sýninguna á Óvitum í dag vegna bilunar í hljóðkerfi mbl.is/Rósa Braga

Bilun kom upp í hljóðkerfi Þjóðleikhússins þegar sýning á Óvitunum stóð yfir í dag. Senda þurfti sýningargesti heim af þessum sökum, að sögn Ara Matthíassonar, framkvæmdastjóra Þjóðleikhússins.

Viðgerð tók um það bil hálfa klukkustund og hófst næsta sýning leikhússins á réttum tíma, samkvæmt upplýsingum frá Ara. Ekki er ljóst hvað olli biluninni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert