Flytur skýrslu um skuldastöðu heimilanna

Sigmundur Davíð mun flytja skýrslu um skuldastöðu heimilanna á fimmtudaginn.
Sigmundur Davíð mun flytja skýrslu um skuldastöðu heimilanna á fimmtudaginn. Eggert Jóhannesson

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra mun flytja þinginu skýrslu um stöðuna í skuldamálum heimilanna á fimmtudagsmorgun. Þetta kom fram í máli Helga Hjörvars, þingmanns Samfylkingarinnar, á Alþingi í dag.

Helgi sagði þetta vera mikið fagnaðarefni. Þá skoraði hann á forsætisráðherra að nýta þetta tækifæri til að taka af allan vafa um hvað eigi að gera í skuldamálum heimilanna og hverjar stóru línurnar í þeim málum séu.

Starfshópar forsætisráðherra um úrlausn í skuldamálum og afnám verðtryggingar eiga að skila niðurstöðum sínum í þessum mánuði.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert