Katrín reiknar með miklum umræðum

Katrín Jakobsdóttir, formaður VG.
Katrín Jakobsdóttir, formaður VG. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Snarpar umræður urðu á Alþingi í dag um þá ákvörðun Sigurðar Inga Jóhannssonar, umhverfisráðherra, að fella úr gildi lög um náttúruvernd sem sett voru fyrir þingkosningarnar síðastliðið vor í tíð fyrri ríkisstjórnar. Ráðherrann ákvað að draga lögin til baka í sumar en fyrsta umræða um lagafrumvarp þess efnis hófst í dag og stendur nú yfir.

Sigurður Ingi var harðlega gagnrýndur fyrir ákvörðun sína en hann skýrði hana með því að hann vildi skapa sátt um málið og koma til móts við athugasemdir almennings. Sigurður sagði tvo kosti hafa verið í boði að mati umhverfisráðuneytisins; annars vegar að fresta gildistöku laganna og hins vegar að draga þau til baka. Niðurstaðan hefði verið sú að frestun gildistöku laganna hefði skapað óæskilega óvissu um framtíð málsins.

Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, lýsti því yfir í umræðunni að hún ætti von á því að mikil umræða ætti eftir að eiga sér stað um málið á Alþingi sem út af fyrir sig væri í góðu lagi enda ættu lögin, sem ráðherrann ætlaði að draga til baka, ekki að taka gildi fyrr en í apríl á næsta ári. Furðaði hún sig á þeirri ákvörðun að draga lögin til baka í stað þess að leggja fram frumvarp til breytinga á þeim atriðum sem ráðherrann vildi hafa með öðrum hætti.

Fleiri stjórnarandstæðingar tóku til máls með hliðstæðum hætti og þar á meðal Steingrímur J. Sigfússon og Svandís Svavarsdóttir, þingmenn VG, auk Róberts Marshall, þingmanni Bjartrar framtíðar. Steingrímur sagði ákvörðun Sigurðar einhverja þá snautlegustu sem nokkur umhverfisráðherra hefði tekið. Að fella úr gildi lög um náttúruvernd sem nýlega hefðu verið endurskoðuð eftir mikla vinnu.

Spurði hann hvort Sigurður Ingi væri skyldur ítölsku skriðdrekunum í síðari heimsstyrjöldinni sem sagðir voru hafa haft einn gír áfram en fjóra aftur á bak. Ráðherrann væri að fara aftur á bak í umhverfismálunum. Katrín tók undir með Steingrími og sagði að um afturhvarf væri að ræða til ársins 1998.

Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins, velti því upp hvort stefndi í málþóf vegna málsins. Katrín svaraði því til að hún teldi málið einfaldlega eiga skilið ítarlega umræðu eins og á síðasta kjörtímabili.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert