Stefnir í mikinn faraldur

Óskar Guðjónsson mælir blóðsykur í konu sem kom í Lyfju …
Óskar Guðjónsson mælir blóðsykur í konu sem kom í Lyfju í Lágmúla og nýtti sér átak Lionsmanna. mbl.is/Ómar

Alls fóru 2.141 manns í blóðsykursmælingu um helgina hjá Lionsmönnum á Íslandi, í tilefni alþjóðadags sykursjúkra sl. fimmtudag. Sykursýki er vaxandi vandamál hér á landi og hafa Lionsfélagar í áratugi lagt sitt af mörkum í baráttu við sjúkdóminn.

„Offitan er stórt vandamál, við erum orðin þyngst þjóða í Evrópu. Meðalþyngdarstuðullinn er í kringum 28,“ segir Jón Bjarni Þorsteinsson, heimilislæknir og Lionsmaður í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag, og bætir við að íslenskir karlmenn hafi á síðustu 40 árum bætt á sig að meðaltali átta kílóum.

Konur hafa bætt á sig sjö kílóum á sama árabili og hefur tíðni sykursýkinnar aukist samfara þessu. Því stefnir í mikinn faraldur hér á landi, verði ekkert að gert. Jón Bjarni segir mælingarnar tvímælalaust skila árangri, en um 3-5% þeirra sem komu í mælingu um helgina var vísað áfram í frekari rannsóknir.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert