Tveir lettneskir karlmenn eru í haldi lögreglunnar á Selfossi og er til skoðunar að krefjast gæsluvarðhalds yfir þeim. Mennirnir eru börðu meðal annars sumarbústaðaeiganda í gærkvöldi. Sá hlaut mikinn skurð í andliti og er grunur um rifbeinsbrot. Mennirnir eru auk árásarinnar grunaðir um innbrot í sumarbústaði.
Í tilkynningu frá lögreglu segir að um klukkan níu í gærkvöldi hafi lögreglu verið tilkynnt um að þjófavarnakerfi hafi farið í gang í sumarbústað í Reykjaskógi í Bláskógabyggð. Lögreglumenn héldu þegar áleiðis á vettvang en á leið sinni hringdu þeir í mann sem fór að Reykjaskógi til að huga að innbrotsþjófum. „Í símanum heyrðist að mikið gekk á, hróp og öskur á erlendri tungu.“
Maðurinn hafði þá hitt tvo útlenska karlmenn við símahlið á veginum inn í Reykjaskóg. Hann bað þá að bíða þar til lögregla kæmi á staðinn, en þeir réðust þá á hann með þeim afleiðingum að hann hlaut skurð í andliti og er hugsanlega rifbeinsbrotin. Manninum tókst að ná niður skráninganúmeri bíls árásarmannanna og fundu lögreglumenn hana við Úthlíð.
Annar mannanna hefur tvívegis verið staðinn að gripdeild í verslunum í Árnessýslu. Annars vegar í ferðamannaverslunum á Geysi og Gullfossi og hins vegar í Hagkaup og Tölvulistanum á Selfossi.
Í ljósi alvarleika málsins var þegar á frumstigi leitað eftir aðstoð sérsveitar ríkislögreglustjóra og lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Ekki kemur þó fram í tilkynningu frá lögreglunni á Selfossi hvort umrætt embætti hafi nokkuð komið að málinu.