Ísland fær aðgang að markaði Króatíu

Ísland og Króatía hafa átt í samskiptum á ýmsum sviðum …
Ísland og Króatía hafa átt í samskiptum á ýmsum sviðum að undanförnu. mbl.is/Ómar

Samningaviðræðum um aðild Króatíu að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið lauk í dag með áritun samningamanna um meginniðurstöður samningaviðræðna. Niðurstaðan felur í sér að EES/EFTA-ríkin, Noregur, Ísland og Liechtenstein fá aðgang að markaði Króatíu með sama hætti og að markaði aðildarríkja ESB. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu. Þar segir ennfremur að lagatæknilegur frágangur á samningi muni taka nokkrar vikur.

Þá kemur fram, að Ísland muni jafnframt fá aukna tollfrjálsa innflutningskvóta fyrir sjávarafurðir inn á markað ESB, nánar tiltekið fersk karfaflök (100 tonn) og humar (60 tonn).

„Ríkin þrjú fallast á að greiða til uppbyggingasjóðs EES alls 5 milljónir evra sem renna til Króatíu. Það er í samræmi við fjárframlög til nýrra aðildarríkja EES undanfarinn áratug. Áætluð hlutdeild Íslands er um 161 þúsund evrur. Þar að auki greiðir Noregur sérstaklega 4,6 millj. evra til Króatíu.

Gert er ráð fyrir að að þær aðlaganir sem Króatía samdi um við aðild sína að ESB muni einnig gilda innan EES, þ.m.t. um frjálsa för vinnuafls. Það felur í sér að Íslandi er heimilt að takmarka aðgang Króata að íslenskum vinnumarkaði í allt að sjö ár. Ísland mun beita takmörkunum til 30. júní 2015 hið minnsta,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert