Deilt hefur verið um fagurfræðilegt gildi Hamraborgarinnar í Kópavogi. Tónlistarmaðurinn og rapparinn Erpur Eyvindarson segir hins vegar arkitektúr svæðisins á undan sinni samtíð og hafa sannað gildi sitt í dag.
Gott dæmi um nýstárlega hugsun í arkitektúr og verkfræði nefnir Erpur dularfulla hurð með dulinn tilgang sem hann leiðir lesendur í allan sannleikann um auk þess að bjóða upp á rímur um Kópavogsbæ.