Skuldalækkun með skattabreytingum

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, ræddi um tillögur í skuldamálum heimilanna …
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, ræddi um tillögur í skuldamálum heimilanna á haustfundi Framsóknarflokksins.

Farin verður blönduð leið við lækkun á skuldum heimilanna. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, sagði á haustfundi Framsóknarflokksins á Selfossi í dag að þetta fæli m.a. í sér breytingar á skattkerfinu.

„Við munum uppfylla öll þau fyrirheit sem við höfum gefið. Við ætlum að leiðrétta fyrir sérstökum verðbólguáhrifum sem bankarnir bjuggu til. Við blöndum leiðum í samræmi við stjórnarsáttmálann og þingsályktunartillög og úr því kemur besta niðurstaðan. Það verður ekki vandamál fyrir okkur vegna þess að við lögðum sjálf til að skattaleiðin yrði farin. Hún hefur ýmsa kosti og spilar vel saman við hitt,“ sagði Sigmundur Davíð á fundinum, en frá honum er sagt á vefsíðu Framsóknarflokksins.

Leysum ekki skuldavanda allra

„Athuganir sérfræðinganna hafa staðfest hversu öfugir hvatar hafa verið á síðasta kjörtímabili. Ótal raunveruleg dæmi sýna hvernig þeir sem ákváðu að borga ekki af lánum sínum fengu mun meiri leiðréttingu en þeir sem höfðu verið í sömu stöðu en stóðu í skilum. Höfum ótal dæmi sem sýna að það munar milljónum á því hvort fólk stóð í skilum eða ekki. Auk þess er þekkt að minnst hefur verið komið til móts við þá sem fóru valega fyrir efnahagshrunið. Við munum ekki leysa skuldavanda allra. Þetta er réttlætisaðgerð; þetta er jafnræðisaðgerð; þetta er er efnahagsleg aðgerð. Þetta er aðgerð sem mun marka efnahagslegan og samfélagslegan viðsnúning“, sagði Sigmundur Davíð jafnframt.

Flokkarnir boðuðu skattalækkun í tengslum við skuldamálin

Í kosningastefnuskrá Framsóknarflokksins er talað um að nota einnig skattkerfið til að lækka skuldir heimilanna. Þar segir „að skattaafsláttur verði veittur vegna afborgana húsnæðislána og upphæð afsláttarins greiðist beint inn á höfuðstól lánsins. Áfram verði leitað leiða til að veita fólki jákvæða hvata til að standa í skilum og minnka skuldsetningu heimilanna.“

Fyrir kosningar kynnti Sjálfstæðisflokkurinn leið í skuldamálum heimanna sem gekk út á 20% lægri höfuðstóll meðalíbúðaláns á næstu árum með skattaafslætti og skattfrjálsum séreignarsparnaði. Tillögurnar gengu út á að hver fjölskylda fengi 40 þúsund króna skattaafslátt á mánuði sem notaður yrði til að greiða inn á fasteignalán. Til viðbótar gæti fólk notað þau 4% sem launþegi og vinnuveitandi greiða í viðbótarsparnað til að greiða inn á lánið og lækkað þannig höfuðstól þess.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert