Varað er við flughálku á Holtavörðuheiði, á Landvegi, Mýrdalssandi og í kringum Kirkjubæjarklaustur að sögn Vegagerðarinnar.
Á Suður- og Suðvesturlandi er hálka eða hálkublettir en flughált er á Landvegi.
Hálka og hálkublettir eru allvíða á Vesturlandi og Vestfjörðum. Flughálka er á Holtavörðuheiði.
Á Norður- og Norðausturlandi er víðast hvar hálka eða hálkublettir.
Um austanvert landið er hálka eða hálkublettir. Greiðfært er með ströndinni í Höfn.
Með suðausturströndinni er greiðfært fyrir utan flughálku á milli Kirkjubæjarklaustur og Víkur.