Vegna framkvæmda við fern gatnamót milli Móa og Skrauthóla á Kjalarnesi verður hraði tekin niður í 50 km/klst á hverjum stað fyrir sig í dag og næstu 2 daga, samkvæmt tilkynningu frá Vegagerðinni.
Unnið er að jarðvegsskiptum vegna lagfæringar á Álftanesvegi um 300 m norðan Garðaholtsvegar. Ekki er unnið í núverandi vegstæði en vinna nær inn í vegfláa að vestanverðu. Búast má við einhverjum truflunum vegna umferðar vinnuvéla og vörubíla. Vegfarendur eru því beðnir að sýna fyllstu aðgát og fylgja merkingum.