Mun fara í saumana á málinu

Nemendur Menntaskólans í Reykjavík söfnuðust saman við mennta- og menningarmálaráðuneytið í morgun til að afhenda Illuga Gunnarssyni mennta- og menningarmálaráðherra mótmæli við lágum fjárframlögum til skólans að þeirra mati. Nemendur og starfsmenn skólans hafa vakið athygli á fjármálum hans að undanförnu og bent á að kostnaður við hvern nemenda er áætlaður minni en við aðra skóla. 

Ráðherra bauð forsvarsmönnum nemenda til fundar við sig þar sem þær ræddu málefni skólans og skýrt var fyrir nemendum að framlög til skóla ráðast af mismunandi forsendum og eru því mismunandi eftir starfsemi þeirra, t.d. að bóknámsbrautir eru að jafnaði kostnaðarminni en margar verknámsbrautir. Einnig var vakin athygli á að mismunandi reiknaður kostnaður vegna húsnæðis getur valdið töluverðri skekkju þegar framlög á hvern nemanda eru borin saman á milli skóla, segir í frétt á vef menntamálaráðuneytisins.

Í fundarlok þakkaði ráðherra nemendum fyrir að vekja athygli á stöðu skólans og sagði að ráðuneytið myndi fara í saumana á málinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert