Halldór Halldórsson, oddviti Sjálfstæðismanna í Reykjavík, segir að 80-90% sátt sé um nýtt aðalskipulag Reykjavíkur sem samþykkt var í gær í borgarstjórn. Á fundi um framtíð Vatnsmýrarsvæðisins var hann spurður út í það hvort hann myndi vinna að því afnema skipulagið kæmist Sjálfstæðisflokkurinn til valda í næstu kosningum. Halldór sagði að hann myndi ekki gera það, en að endurskoða þyrfti ákveðna hluta þess og nefndi hann í því sambandi sérstaklega flugvöllinn.
„Mér finnst þetta aðalskipulag að langmestu leiti vera gott,“ sagði Halldór og sagði mikinn tíma og vinnu hafa farið í vinnslu þess. Hann taldi ekki rétt að bylta því eða henda, en að nokkur mál þörfnuðust skoðunar. „Ég myndi ekki afnema skipulagið, en endurskoða hluta þess,“ sagði Halldór.