Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði 480 ökumenn á höfuðborgarsvæðinu í kvöld og kannaði hvort þeir væru undir áhrifum áfengis og fíkniefna.
Tveir ökumenn reyndust vera undir áhrifum og voru þeir handteknir. Þeir mega búast við ökuleyfissviptingu.
Þetta er liður í umferðarátaki lögreglu, sem jafnan er á þessum árstíma, tíma jólaglöggs og jólahlaðborða.