Tíu ára stúlka liggur á gjörgæsludeild Landspítalans eftir slys í heimahúsi í Kiðjabergi í Grímsnesi í gærkvöldi. Stúlkan var uppi á borði í eldhúsi heimilisins þegar hún féll aftur fyrir sig og á uppþvottavél sem stóð opin. Í hnífaparastandi var eldhúshnífur sem stakkst í vinstra herðablað hennar.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi missti stúlkan mikið blóð og annað lungað féll saman. Henni var ekið til móts við sjúkrabíl sem kom frá Selfossi og flutt á Landspítalann. Líðan stúlkunnar er eftir atvikum en hún er ekki talin í lífshættu.