92 sagt upp í hópuppsögnum

Vinnumálastofnun
Vinnumálastofnun mbl.is/Ómar Óskarsson

Vinnumálastofnun bárust þrjár hópuppsagnir í nóvember þar sem 92 manns var sagt upp störfum. 

Um er að ræða tilkynningu um hópuppsagnir í upplýsinga- og fjarskiptastarfsemi og fiskvinnslu.  Uppsagnirnar koma til framkvæmda á tímabilinu janúar til júní 2014.

Alls hafa Vinnumálastofnun borist 10 tilkynningar um hópuppsagnir frá janúar til nóvember 2013, þar sem 290 manns hefur verið sagt upp störfum, að því er fram kemur á vef Vinnumálastofnunar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert