Lögreglumenn sáu til Stekkjastaurs

Stekkjastaur kemur til byggða í nótt.
Stekkjastaur kemur til byggða í nótt. mbl.is/Kristinn

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu greinir frá því á facebook-síðu sinni í kvöld að lögreglumenn hafi séð til Stekkjastaurs í kvöld þar sem hann var að leggja á stað til byggða. Þar segir að gert sé ráð fyrir því að hann verði á ferðinni á sleða í nótt og eru ökumenn beðnir um að sýna honum tillitsemi, verði hann á vegi þeirra.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert