Í dag fór fram útskrift Lögregluskóla ríkisins, en þar útskrifuðust 19 lögreglunemar frá skólanum.
Á heimasíðu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu er nemunum óskað til hamingju með áfangann og þeir boðnir velkomnir í góðan hóp.
„Lögreglustéttin er lítil og í sjálfu sér finnst öllum lögreglumönnum stutt síðan þeir útskrifuðust,“ segir á Facebook-síðunni.