Aumt að neita atvinnulausum um desemberuppbót

mbl.is/Ernir

Framkvæmdastjórn Starfsgreinasambandsins SGS segir krefst þess að stjórnvöld sjái til þess að atvinnulausir fái greidda desemberuppbót. „Það er ein af undirstöðum velferðarkerfisins að tryggja lágmarksframfærslu fólks sem dettur út af vinnumarkaði,“ segir í ályktun frá SGS.

Ályktunin ber yfirskriftina „Fjármálaráðherra neitar atvinnulausu fólki um desemberuppbót“.

Hún er svohljóðandi:

„Niðurskurðarhnífurinn fer víða í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar og bitnar hart á lágt launuðu fólki á vinnumarkaðnum. Skuldaniðurfellingarúrræðin koma tekjuhærri betur en tekjulægri hópunum, skattatillögurnar sömuleiðis svo ekki sé rætt um hækkanir á gjaldskrám sem bitna hlutfallslega meira á tekjulægri hópunum á vinnumarkaði. Þegar kemur að atvinnulausu fólki tekur steininn úr. Skorið er niður til verkefna og þjónustu við atvinnulausa, starfsendurhæfingin er skert gríðarlega og samningum um félagsleg úrræði rift. Aumasta útspilið er þó að neita atvinnulausu fólki um desemberuppbót í aðdraganda jólanna. Það er ein af undirstöðum velferðarkerfisins að tryggja lágmarksframfærslu fólks sem dettur út af vinnumarkaði og að fólk í þeirri stöðu njóti réttinda. Desemberuppbótin er ekki há en getur skipt sköpum fyrir fólk í jólamánuðinum. Starfsgreinasamband Íslands vísar ábyrgðinni á fjármálaráherra og krefst þess að úr þessu verði bætt strax.“ 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert