Hundur í kassa í ruslageymslu

mbl.is/Kristinn Freyr Jörundsson

Íbúi í Reykjanesbæ kom á lögreglustöðina í Keflavík í gærmorgun og tjáði lögreglunni á Suðurnesjum að hann hefði fundið hund  í kassa í ruslageymslu. Kvað hann hundinn vera á lífi en greinilegt væri að hann hefði verið skilinn þarna eftir.

Lögreglumenn sóttu hundinn og hundafangari mætti síðan á lögreglustöðina  og sótti hann.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert