Þingfundi lauk nú um kl. 23:30 í kvöld og kemur Alþingi næst saman kl. 10:30 í fyrramálið. Fyrr í kvöld lauk atkvæðagreiðslu um aðra umræðu um frumvarp til fjárlaga og það fer nú til þriðju umræðu.
Í kvöld fór m.a. fram þriðja umræða um fjáraukalögin og um Orkuveitu Reykjavíkur en atkvæðagreiðslu var frestað að loknum umræðum.