Tólf þingmenn úr öllum flokkum nema Vinstri grænum hafa óskað eftir að fjármála- og efnahagsráðherra gefi Alþingi skýrslu um Dróma hf.
Í beiðni þingmannanna er ráðherra beðinn um að gera Alþingi grein öllum ákvörðunum sem opinberir aðilar, þ.m.t. stofnanir ríkisins og dómstólar, hafa tekið varðandi Dróma hf. með vísan í heimildir til slíkra ákvarðana. Jafnframt skulu í skýrslunni koma fram stjórnunar- og eignatengsl allra aðila sem umræddar ákvarðanir tóku og yfirstjórnar Dróma hf., þ.e. stjórnar og stjórnenda.
Að auki skal sérstaklega upplýsa um eftirfarandi:
Skýrslubeiðnin kemur frá þingmönnunum Jóni Þór Ólafssyni, sem er jafnframt framsögumaður hennar, Birgittu Jónsdóttur, Elsu Láru Arnardóttur, Guðlaugi Þór Þórðarsyni, Helga Hrafni Gunnarssyni, Páli Val Björnssyni, Róberti Marshall, Vilhjálmi Árnasyni, Ásmundi Friðrikssyni, Jóni Gunnarssyni, Sigríði Ingibjörgu Ingadóttur og Valgerði Bjarnadóttur.