Björgunarsveitirnar Kári í Öræfum og Kyndill á Kirkjubæjarklaustri hafa verið kallaðar út til aðstoðar ferðafólki er lenti í vandræðum við Sandfell á leið sinni frá Jökulsárlóni. Fólkið var á ferð í þremur rútum og brotnuðu rúður í þeim öllum við mikið sandfok á Skeiðarársandi.
Björgunarsveitin Kári býr yfir brynvörðum bíl sem verður notaður til að ferja fólkið á Núpsstaði þar sem Björgunarsveitin Kyndill tekur við því og kemur á Kirkjubæjarklaustur.
Ekkert ferðaveður er nú á Skeiðarársandi og fólki ráðlagt frá því að aka þá leið.
Í tilkynningu frá lögreglu á Kirkjubæjarklaustri er fólk eindregið varað við því að vera á ferð um Skeiðarársand, frá Lómagnúp að Freysnesi. Mikið hvassviðri er á þessum slóðum.
„Þetta á reyndar við víðar, þ.e. ófærð og ekki ráðlegt að vera á ferð. Það má hvetja fólk til að benda erlendum ferðamönnum sem eru á ferðinni á bílaleigubílum að víða er ófært og ráðlegt að koma sér á gististaði og halda þar kyrru fyrir,“ segir í tilkynningunni.