Hátt í 200 manns björguðu jólunum

Björgunarsveitarmenn á höfuðborgarsvæðinu voru að störfum langt fram á jólanótt.
Björgunarsveitarmenn á höfuðborgarsvæðinu voru að störfum langt fram á jólanótt. Ljósmynd/Guðbrandur Örn Arnarson

Alls voru hátt í 200 björgunarsveitarmenn kallaðir út í gær, aðfangadag jóla, til að sinna verkefnum víða um land. Á höfuðborgarsvæðinu voru björgunarsveitir að störfum í 8 klukkustundir samtals í gær og fram á nótt, m.a. við aðstoða tugi manna sem festust í ófærð á heimleið eftir jólaboð.

Um 35 manns unnu í að leysa ástandið sem skapaðist á Vesturlandsvegi í gærkvöldi. Eftir að hafa aðstoðað tugi bíla á Mosfellsheiði skapaðist jafnvel verra ástand á Vesturlandsvegi þar sem hátt í 50 bílar lentu í vanda. Samkvæmt upplýsingum frá Landsbjörg voru Íslendingar í flestum bílanna, á leið heim eftir jólaboð.

Fjórar björgunarsveitir komu að flutningi slasaðs

Björgunarsveitin Gerpir á Neskaupsstað var kölluð út á níunda tímanum í gærkvöldi til þess að koma lækni yfir Oddsskarð á móts við sjúkrabíl sem var á leið frá Djúpavogi með sjúkling á leið í flug á Egilsstöðum. Lagt var af stað á tveimur bílum. Færð og veður reyndust afleitt og voru fjallvegir sérlega seinfarnir.

Brátt varð ljóst að kalla þyrfti út fleiri bjargir. Þegar upp var staðið höfðu fjórar björgunarsveitir af Austfjörðum tekið þátt í að koma hinum slasaða til Egilsstaða og voru notaðir til þess fimm sérútbúnir jeppar, tveir snjóbílar, tvö snjóruðningstæki og tveir sjúkrabílar.

Síðustu björgunarmenn skiluðu sér í hús um klukkan sex í morgun en alls tóku um 30 manns þátt í aðgerðinni fyrir austan.

Tugir bíla lentu í vanda á Mosfellsheiði og á Vesturlandsvegi.
Tugir bíla lentu í vanda á Mosfellsheiði og á Vesturlandsvegi. Ljósmynd/Guðbrandur Örn Arnarson
Um 35 björgunarsveitarmenn unnu í að leysa ástandið sem skapaðist …
Um 35 björgunarsveitarmenn unnu í að leysa ástandið sem skapaðist á Vesturlandsvegi í gærkvöldi. Ljósmynd/Guðbrandur Örn Arnarson
Á Vesturlandsvegi var fljúgandi hálka, hvasst og lítið skyggni í …
Á Vesturlandsvegi var fljúgandi hálka, hvasst og lítið skyggni í gærkvöldi og í nótt. Ljósmynd/Guðbrandur Örn Arnarson
Flytja þurfti tugi manna úr bílum sínum í bæinn á …
Flytja þurfti tugi manna úr bílum sínum í bæinn á jólanótt. Ljósmynd/Guðbrandur Örn Arnarson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert