Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um ferðir þriggja manna á bíl við Smiðjuveg í Kópavog laust fyrir miðnætti í nótt, en þeir þóttu grunsamlegir í háttalagi.
Að sögn lögreglu voru mennirnir stöðvaðir skömmu síðar. Þeir eru grunaðir um þjófnað og telst málið upplýst.