Lægstu taxtar hafa hækkað mest

Kjarasamningarnir voru undirritaðir skömmu fyrir jól. Björgólfur Jóhannsson, formaður Samtaka …
Kjarasamningarnir voru undirritaðir skömmu fyrir jól. Björgólfur Jóhannsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, og Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, takast í hendur. Magnús Pétursson ríkissáttasemjari stendur á milli þeirra. mbl.isGolli

Frá ársbyrjun 2008 til janúar 2014 hækkuðu lágmarkslaun (lágmarkstekjutrygging fyrir fullt starf) um 71% á sama tíma og almennar launahækkanir samkvæmt kjarasamningum námu 28%. Launavísitala Hagstofunnar hefur á þessum tíma hækkað um 40%.

Þetta kemur fram í frétttilkynningu Samtaka atvinnulífsins. Þar segir að nýgerður kjarasamningur feli í sér framhald stefnu kjarasamninga síðustu ára, að hækka lægstu laun sérstaklega. Niðurstaðan er sú að kaupmáttur lágmarkslauna er í janúar 2014 15% hærri en í janúar 2008 en kaupmáttur á mælikvarða launavísitölu er u.þ.b. 3% lakari.

„Mjög hefur verið rætt um þróun lægstu launa hér á landi í kjölfar kjarasamninga sem gerðir voru 21. desember síðastliðinn milli SA og aðildarsamtaka ASÍ. Hafa samningarnir meðal annars verið gagnrýndir fyrir að hækka ekki lægstu laun nægjanlega mikið umfram almenna launahækkun. Niðurstaða samninganna var 2,8% almenn launahækkun, þó að lágmarki 8.000 kr. á mánuði. Sérstök hækkun lægstu launa var útfærð þannig að launataxtar undir 230.000 kr. hækkuðu um 9.750 kr., eða sem samsvarar 5% á lægstu byrjunarlaun.

Í þessu felst að lægstu laun hækka nálægt tvöfalt meira hlutfallslega en hærri laun. Það er svipuð niðurstaða og  undanfarin ár, en samningurinn nú felur í sér að sjöunda árið í röð eru lægstu laun hækkuð umtalsvert umfram hærri laun,“ segir í fréttatilkynningunni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert