Kona meðvitundarlítil eftir bílveltu

mbl.is/Hjörtur

Björgunarsveitarmenn eru nýkomnir á slysstað þar sem bíll valt í dag. Í bílnum voru fimm farþegar, fjórir ferðamenn og einn starfsmaður innan ferðaþjónustu. Fjórir þeirra eru lítið sem ekkert slasaðir en ein kona er meðvitundarlítil og óvíst með frekari áverka. Hún er nú í björgunarsveitarbíl á leið í Lundarreykjadal þar sem sjúkrabifreið bíður. 

Björgunarsveitarmennirnir eru nú að vinna að því að snúa bifreiðinni við og munu þeir aka henni til byggða, reynist hún gangfær. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert