Krefst þess að hætt verði við hækkun

„Blekið er ekki þornað af nýgerðum kjarasamningum þegar stjórnvöld senda kaldar kveðjur til launafólks í formi gjaldskrárhækkana,“ segir í yfirlýsingu frá Starfsgreinasambandinu. Er bent á að komugjöld á heilsugæslustöðvar hafi hækkað um 15-20% 1. janúar síðastliðinn. Rétt fyrir jól hafi hins vegar verið undirritaður kjarasamningur með hógværum launahækkunum og ásetningi um að halda aftur af hækkunum hjá fyrirtækjum og í gjaldskrám hins opinbera.

„Stærstu sveitarfélög landsins hafa dregið til baka fyrirhugaðar hækkanir og í tengslum við kjarasamninga undirritaði fjármálaráðherra bréf með „skuldbindandi fyrirheitum“ um svipað. Reyndar segir orðrétt í bréfinu sem fjármálaráðherra undirritaði 21. desember síðastliðinn: „Næstu tvö ár verði gjaldskrárhækkanir ríkisins undir verðbólgumarkmiði Seðlabanka Íslands.“ Verðbólgumarkmið Seðlabankans er 2,5% á tólf mánuðum en rúmri viku eftir undirritum yfirlýsingarinnar hækka komugjöld á heilsugæslustöðvar um 15-20%. Framkvæmdastjórn Starfsgreinasambands Íslands krefst þess að þessi hækkun verði afturkölluð og staðið verði við gefin loforð í aðdraganda kjarasamninga,“ segir þar ennfremur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert