Sjö bílar á vegum hreinsunardeildar Reykjavíkurborgar eru að bera salt á götur borgarinnar en mikil ísing myndaðist á götum þegar fór að létta til í morgunsárið.
Samkvæmt upplýsingum frá hreinsunardeildinni fór ísing að myndast, einkum í íbúðagötum, á sjötta tímanum í morgun en í nótt rigndi aðeins á höfuðborgarsvæðinu. Vegfarendur eru beðnir um að fara varlega í morgunumferðinni og eins að gæta vel að sér á bílastæðum þar sem mikil ísing er víða á þeim.