Hálkuslys við gatnamót

mbl.is/Hjörtur

Hálkuslys varð við gatnamót Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar nú skömmu fyrir klukkan 16. Þar huguðu vegfarendur að manneskju sem lá hreyfingarlaus í jörðinni. Sjúkrabifreið var send á vettvang og flutti hún viðkomandi á slysadeild.

Mikill erill hefur verið í sjúkraflutningum að sögn varðstjóra hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, m.a. vegna hálkuslysa.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert