Tveir bílar rákust saman á brúnni yfir Jökulsá á Sólheimasandi. Brúin er einbreið, þannig að Suðurlandsvegur er lokaður á þessum hluta.
Tveir sjúkrabílar eru á staðnum, auk þess sem kalla þurfti út tækjabíl til að ná fólki út úr öðrum bílnum. Einhver slys urðu á fólki, en ekki er vitað hversu alvarlega.
Lögreglan á Hvolsvelli segir erfitt að athafna sig á brúnni, þar sem hún er einbreið, og lítið þurfi þess vegna til að fólk festist inni í bílum eftir árekstur. Mjög hált er á svæðinu.