Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hvetur fólk til að halda sig innandyra og vera ekki á ferðinni að nauðsynjalausu. Í færslu á Facebook-síðu lögreglunnar kemur fram að lögreglan sé í viðbragðsstöðu ef ástandið versnar. Suðurlandsvegur er lokaður við Rauðavatn en þar er allt orðið ófært að sögn lögreglu. Bílar hafa fokið út af við Kjalarnes í dag.