Alþýðusamband Íslands segir að heildar raforkukostnaður hjá heimilum landsins hafi hækkað frá því í ágúst 2013 miðað við 4.000 kWst. notkun á ári. Fram kemur að raforkukostnaðurinn hafi hækkað mest hjá viðskiptavinum Rarik dreifbýli/Orkusalan eða um 6,6%, Rafveita Reyðarfjarðar hefur hækkað um 2,8% og Orkuveita Reykjavíkur/Orka Náttúrunnar um 1,3%.
Í tilkynningu frá ASÍ, segir að ekki hafi allar dreifiveiturnar hækkað verðið en mest hækki Rarik dreifbýli um 9%, Rafveita Reyðarfjarðar um 2,8%, OR um 2,1% og HS veita um 0,4%. Verð á raforkunni hefur hækkað hjá öllum raforkusölum að lámarki um 0,08%, en Rafveita Reyðarfjarðar hefur hækkað um 2,47%. Benda má á að skattur á raforkusölu, umhverfis- og auðlindaskatturinn var hækkaður um áramót úr 0,126 kr. á kWst. í 0,13 kr. á kWst.
„Raforkureikningi heimilisins má skipta í tvo hluta. Annars vegar er greitt fyrir flutning og dreifingu raforkunnar til þeirrar dreifiveitu sem hefur sérleyfi á viðkomandi landsvæði og hins vegar er greitt fyrir raforkuna sjálfa til þess sölufyrirtækis sem hver og einn kaupandi velur. Þannig greiðir heimili á Ísafirði ávallt Orkubúi Vestfjarða fyrir flutning og dreifingu á raforku en getur síðan t.d. valið að kaupa raforkuna af Orkuveitu Reykjavíkur,“ segir í tilkynningu. Nánar á vef ASÍ.