Frambjóðendur Samfylkingar í Reykjavík

Mynd úr safni.
Mynd úr safni. mbl.is/Ómar

Frestur til að skila inn framboðum vegna flokksvals Samfylkingarinnar í Reykjavík fyrir komandi borgarstjórnarkosningar rann út í gær. Alls bjóða fimmtán sig fram, átta karlar og sjö konur.

Meðalaldur frambjóðenda er 42 ár og er þriðjungur þeirra yngri en 35 ára. Í tilkynningu sem Samfylkingin sendi frá sér vegna flokksvalsins kemur meðal annars fram að ungir jafnaðarmenn um land allt hafa markvisst hvatt ungt fólk til að gefa kost á sér til starfa í sveitarstjórnum.

Í dag klukkan 14 munu frambjóðendur hefja undirbúninginn fyrir flokksvalið í sameiningu með því að þiggja boð Hallveigar, félags ungra jafnaðarmanna í Reykjavík, um að snæða með þeim kjötsúpu. Yfir matnum er svo áformað að ræða stöðu ungs fólks í Reykjavík.

Félagar í aðildarfélögum Samfylkingarinnar kjósa bindandi kosningu um fjögur efstu sætin á lista fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor og geta raðað frambjóðendum í sæti 5 til 8 án þess að það sé bindandi fyrir valnefnd sem stillir upp á listann.

Listi Samfylkingarinnar verður paralisti. Í tveimur efstu sætum verður einn einstaklingur af hvoru kyni og svo í hverjum tveimur sætum þar á eftir. Er um að ræða netkosningu sem opin er félagsmönnum dagana 7. og 8. febrúar næstkomandi.

Frambjóðendur eru eftirfarandi:

Anna María Jónsdóttir kennari, Björk Vilhelmsdóttir borgarfulltrúi, Dagur B. Eggertsson borgarfulltrúi og læknir, Dóra Magnúsdóttir stjórnsýslufræðingur, Guðni Rúnar Jónasson framkvæmdastjóri, Heiða Björg Hilmisdóttir deildarstjóri LSH, Hjálmar Sveinsson varaborgarfulltrúi, Kristín Erna Arnardóttir háskólanemi og kvikmyndagerðarmaður, Kristín Soffía Jónsdóttir varaborgarfulltrúi, Magnús Már Guðmundsson framhaldsskólakennari, Natan Kolbeinsson, formaður Hallveigar, félags UJ í Reykjavík, Reynir Sigurbjörnsson rafvirki, Skúli Helgasson stjórnmálafræðingur, Sverrir Bollason skipulagsverkfræðingur og Þorgerður L. Diðriksdóttir kennari.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert