Vilja rýna í þjónustukönnunina

Sjálfstæðismenn í borgarstjórn vilja að rýnt verði í þjónustukönnun Capacent.
Sjálfstæðismenn í borgarstjórn vilja að rýnt verði í þjónustukönnun Capacent. mbl.is/Hjörtur

Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins vilja að þjónustukönnun Capacent verði rýnd og greind af sérfræðingum og að tillögur verði lagðar fram um hvernig bregðast eigi við.

Á fundi borgarstjórnar í dag tilkynnti Júlíus Vífill Ingvarsson, einn af borgarfulltruum Sjálfstæðisflokksins, að á næsta fundi borgarráðs myndu fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja tillöguna fram.

Í tilkynningu frá borgarfulltrúunum segir að þjónustukönnunin hafi leitt í ljós að í samanburði við önnur sveitarfélög sé minnst ánægja meðal borgarbúa með þá þjónustu sem í boði er. Samkvæmt könnuninni hafi Reykjavíkurborg verið í neðsta sæti þegar borgarbúa voru spurðir um þjónustu grunnskólanna, leikskólanna, þjónustu við barnafjölskyldur, þjónustu við fatlað fólk, gæði umhverfisins, íþróttaaðstöðu og þjónustu við aldraða. 

Júlíus Vífill benti á það í ræðu sinni að þegar borgarbúar voru spurðir opinnar spurningar um það hvað Reykjavík þyrfti að bæta hefðu flestir nefnt þjónustu við aldraða. „Þetta eru skýr skilaboð,“ segir hannl. Samgöngumál hafi verið í öðru sæti.

Þegar spurt hafi verið hvað það væri sem borgarbúar vildu koma á framfæri og sem betur mætti fara svöruðu flestir að það væru samgöngur og gatnakerfi. 

„Mér finnst ekki hægt að leggja fram viðamikla skoðanakönnun í ráðum borgarinnar en gera lítið úr niðurstöðunum og bregðast ekki við á neinn hátt. Til hvers er þá verið að spyrja spurninga? Fulltrúar meirihlutans hafa eiginlega snúið út úr niðurstöðunum í svörum sínum í fjölmiðlum en á fundi borgarstjórnar var sem betur fer kominn svolítið annar tónn í þetta,“ segir hann enn fremur í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert