SA samþykkja samninga með 98%

Rafræn atkvæðagreiðsla um nýja kjarasamninga sem Samtök atvinnulífsins undirrituðu við aðildarsamtök ASÍ þann 21. desember 2013 fór fram meðal aðildarfyrirtækja SA dagana 16.-21. janúar.

Samningarnir voru samþykktir með 98,3% greiddra atkvæða, 0,4% atkvæða voru greidd gegn samningunum en 1,3% tóku ekki afstöðu. Greidd voru atkvæði um alla samningana í einu á grundvelli atkvæðavægis aðildarfyrirtækja SA.

 
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert