Kvenfélagið Hringurinn afhendir Barnaspítala Hringsins 110 milljónir króna að gjöf á morgun, á 110 ára afmæli kvenfélagsins.
Árið 2012 gáfu Hringskonur spítalanum 70 milljónir króna í tilefni af 70 ára afmæli Barnaspítalasjóðs Hringsins. – Þá sem nú eina milljón fyrir hvert ár.
Þennan dag, 26. janúar, á 99 ára afmælisdegi Kvenfélagsins Hringsins árið 2003, var Barnaspítali Hringsins vígður, að því er segir í tilkynningu.
Á 80 ára afmæli félagsins var því lýst yfir að óskadraumurinn væri nýr barnaspítali á Landspítalalóð en Hringskonur höfðu átt frumkvæðið að því að barnadeild var fyrst stofnuð á Landspítalanum 1957. Byggingarsjóður nýs barnaspítala var stofnaður 1987 og þegar kom að framkvæmdum styrktu þær húsbygginguna með 150 milljóna króna gjöf auk 50 milljóna króna í búnað.
Hringurinn er kvenfélag, stofnað árið 1904. Félagið hefur að markmiði að vinna að líknar- og mannúðarmálum, sérstaklega í þágu barna.
Aðalverkefni félagsins um áratugaskeið hefur verið uppbygging Barnaspítala Hringsins þar með talin uppbygging Barna- og unglingageðdeildar Landspítala BUGL. Mörg önnur verkefni, sem tengjast veikum börnum, hafa verið studd og styrkt, segir enn fremur í tilkynningu.