Dregur úr langtímaatvinnuleysi

Atvinnuþátttaka kvenna var 78,2% á fjórða ársfjórðungi og karla 83,1%.
Atvinnuþátttaka kvenna var 78,2% á fjórða ársfjórðungi og karla 83,1%. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Á fjórða ársfjórðungi 2013 voru að jafnaði 184.600 manns á aldrinum 16–74 ára á vinnumarkaði og fjölgaði um 4,4% frá sama tíma ári áður eða um 7.800 manns. Jafngildir þetta 80,7% atvinnuþátttöku. Fjöldi fólks utan vinnumarkaðar var 44.200 og hefur því fólki fækkað um 7,5% frá fyrra ári eða um 3.600 manns. Atvinnuþátttaka kvenna var 78,2% og karla 83,1%. 

Þetta kemur fram í tölum Hagstofunnar.

Á fjórða ársfjórðungi 2012 voru alls 176.800 á vinnumarkaði eða 78,7% atvinnuþátttaka og utan vinnumarkaðar voru þá 47.800. Atvinnuþátttaka kvenna var 76,1% og karla 81,3%.

Á vinnumarkaði eða til vinnuaflsins teljast bæði þeir sem eru starfandi og atvinnulausir. Atvinnuþátttaka er hlutfall starfandi og atvinnulausra (vinnuafl) af mannfjölda 16-74 ára.

Starfandi fólki fjölgar

Á fjórða ársfjórðungi 2013 voru að meðaltali 8.400 manns án vinnu og í atvinnuleit eða 4,5% vinnuaflsins. Atvinnuleysi mældist 4,4% hjá konum og 4,6% hjá körlum. Fjöldi starfandi á fjórða ársfjórðungi 2013 var 176.200 manns eða 77% af mannfjölda. Hlutfall starfandi kvenna var 74,7% og starfandi karla 79,3%.

Samanburður fjórða ársfjórðungs 2013 við sama ársfjórðung 2012 sýnir að meðalfjöldi atvinnulausra stendur í stað, en þeir voru 8.400. Hlutfall atvinnulausra lækkaði þó um 0,2 prósentustig. Starfandi fólki fjölgaði hins vegar nokkuð á þessu tímabili eða um 7.800 sem er 4,6% og hlutfall starfandi hækkaði um 2 prósentustig.

Dregur úr langtímaatvinnuleysi

Þeir sem hafa verið atvinnulausir í 12 mánuði eða lengur eru skilgreindir sem langtímaatvinnulausir. Þegar litið er til síðustu fimm ársfjórðunga þá hefur dregið nokkuð úr langtímaatvinnuleysi. Á fjórða ársfjórðungi 2013 höfðu um 2.000 manns verið langtímaatvinnulausir eða 1,1% vinnuaflsins samanborið við 2.500 eða 1,4% vinnuaflsins á fjórða ársfjórðungi 2012.

Atvinnulausir teljast þeir sem voru án atvinnu í viðmiðunarviku könnunarinnar, þ.e. höfðu hvorki atvinnu né voru í vinnu (í eina klukkustund eða lengur) sem launþegi eða sjálfstætt starfandi, eru að leita að vinnu og geta hafið störf innan tveggja vikna eða hafa fengið starf sem hefst innan 3 mánaða. Einstaklingar sem eru ekki í vinnu en eru í námi flokkast atvinnulausir ef þeir uppfylla skilyrðin hér að ofan. Fólk telst vera starfandi ef það hefur unnið eina klukkustund eða meira í viðmiðunarviku könnunar eða verið fjarverandi frá starfi sem það gegnir að öllu jöfnu.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert