Í öllum regnbogans litum í Sotsjí

Samtökin '78 afhentu Illuga Gunnarssyni menningarmálaráðherra kveðjugjöf í dag í tilefni af för hans á Vetrarólympíuleikana í Sotsjí í Rússlandi sem hefjast í næstu viku. Hann var jafnframt hvattur til að sýna hinsegin fólki þar í landi stuðning sem hann sagðist myndu gera ef rétta tækifærið kæmi.

Samtökin höfðu áður hvatt hann til að hunsa boð um að mæta á leikana en þar sem hann væri á leiðinni væri nauðsynlegt að íslensk stjórnvöld sýndu hinsegin fólki stuðning og tækju jafnframt afstöðu gegn alvarlegum mannréttindabrotum rússneskra stjórnvalda. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka