Þyrlurnar verða mjög áberandi

Nýi einkennisliturinn.
Nýi einkennisliturinn. mynd/Landhelgisgæslan

Þyrlan TF-SYN, sem er í stórri skoðun í Noregi, hefur nú verið máluð í nýjum áberandi lit sem til stendur að allar þyrlur Landhelgisgæslunnar beri í framtíðinni.

LHG telur að þessi litur hæfi betur björgunarþyrlunum þar sem hann er mjög áberandi og auðkennandi fyrir björgunartæki, að því er segir á vef Gæslunnar.

Algengt er að björgunarþyrlur og flugvélar, sérstaklega á norðurslóðum, séu málaðar í áberandi litum, að því er segir á vef LHG.

TF-SYN er væntanleg til Íslands í lok mars.

Þyrlan er nú í skoðun í Noregi.
Þyrlan er nú í skoðun í Noregi. mynd/Landhelgisgæslan
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert