Kröfu Hraunavina hafnað

Nýr álftanesvegur
Nýr álftanesvegur Rax / Ragnar Axelsson

Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði í gær kröfu fernra náttúrverndarsamtaka um að leita ráðgefandi álits EFTA-dómstólsins vegna framkvæmda við Álftanesveg. Áður hafi samskonar kröfu verið hafnað í máli varðandi lögbannskröfu samtakanna vegna vegarlagningarinnar.

Á vef Vegagerðarinnar segir að tvö dómsmál séu í gangi vegna Álftanesvegar. Annars vegar mál þar sem Landvernd, Náttúruverndarsamtök Íslands, Náttúruverndarsamtök Suðvesturlands og Hraunavinir vilja fá hrundið ákvörðun sýslumanns um að synja lögbanni, en sýslumaður vísaði lögbannskröfu frá á þeirri forsendu að samtökin ættu ekki lögvarða hagsmuni og því ekki aðild að málinu. Samtökin höfðuðu dómsmál til að fá ákvörðuninni hnekkt. Í því máli var farið fram á að fá ráðgefandi álit EFTA-dómstólsins en héraðsdómur og Hæstiréttur höfnuðu því.

Hitt málið snýst um vegarlagninguna sjálfa og lögmæti hennar á þeim grundvelli að umhverfismat og framkvæmdaleyfi séu ekki gild. Í því máli var einnig óskað ráðgefandi álits EFTA-dómstólsins. 

<div><a href="http://www.vegagerdin.is/media/frettir-2014/Urskurdur-E-2486-2013-synjun-EFTA-040214.pdf" target="_blank">Allur úrskurðurinn</a></div>
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert