Klinkið varð að 14 milljónum

mbl.is

Glaður eldri borgari frá Hafnarfirði kom í heimsókn til Getspár í morgun með vinningsmiðann úr Lottóinu frá því á laugardaginn. Maðurinn var að versla í Fjarðarkaupum og ákvað að kaupa sér lottó í leiðinni. Hann ætlaði sér að kaupa fyrir 500 krónur, en það er sú upphæð sem hann ver vikulega til að kaupa sér lottó eða Víkingalottó, en afgreiðslukonan spurði hvort hann ætti 20 kr. í viðbót því þá gæti hann fengið fjórar raðir í stað þriggja. Maðurinn fann 20 krónur í vasa sínum og ákvað að slá til og keypti fjórar raðir. 

Á laugardagskvöldið las maðurinn frétt á mbl.is um að vinningsmiðinn hefði verið keyptur í Fjarðarkaupum. Hann fór því inn á lotto.is og eftir að hafa borið miðann sinn saman við vinningstölur kvöldsins fjórum sinnum kallaði hann á konuna sína, sem einnig fór margoft yfir miðann, og það var aldeilis gleðistund þegar þau uppgötvuðu að þau höfuð unnið tæpar 14 milljónir.

Og það var einmitt fjórða röðin á miðanum sem færði þeim þennan glæsilega vinning og það má því segja að klinkið hafi gert þau að milljónamæringum. Hjónin ætla að þiggja fjármálaráðgjöf sem Getspá býður þeim upp á en þar sem þau eru bæði komin á eftirlaun ætla þau að nota vinninginn til að geta gert betur við sig í ellinni en þau höfðu gert ráð fyrir, segir í frétt frá Íslenskri getspá.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert