Segir ákvörðunina vonbrigði

Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. mbl.is/Árni Sæberg

Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, segir það vonbrigði að bandarísk stjórnvöld hyggist grípa til ráðstafana vegna hvalveiða Íslendinga. Hvorki lagalegur né vísindalegur grundvöllur sé fyrir aðgerðum Bandaríkjanna.

Í frétt á vef atvinnuvegaráðuneytisins segir að innanríkisráðherra Bandaríkjanna hafi gert Bandaríkjaforseta grein fyrir útnefningu Íslands samkvæmt Pelly-ákvæðinu svokallaða. Útnefningin byggist á því að bandarísk stjórnvöld telja að hvalveiðar Íslendinga grafi undan verndun hvalastofna.

Ráðherra segir hvorki lagalegan né vísindalegan grundvöll fyrir aðgerðum Bandaríkjanna vegna hvalveiða Íslendinga. Fyrir liggi að veiðar Íslendinga séu löglegar og alþjóðleg viðskipti Íslands með hvalaafurðir séu í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar.

Segir ráðherra það hafið yfir allan vafa að veiðarnar séu sjálfbærar og vísindagrundvöllur þeirra sé traustur.

Þá bendir hann á að vísindaleg gögn sýni að veiðar Íslendinga á langreyði Íslendinga séu ekki síður sjálfbærar en norðhvalveiðar Bandaríkjamanna og bandarísk stjórnvöld séu því ekki sjálfum sér samkvæm þegar þau gagnrýna veiðar Íslendinga.        

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert