Lögreglustjórinn á Suðurnesjum birti á facebooksíðu sinni mynd af lögreglubíl við hlið sænskrar Gripen-orrustuþotu:
„Lögreglubifreiðin mátti sín lítils við hlið Gripen-orrustuþotna sænska flughersins. Loftrýmiseftirliti í lofthelgi Íslands sem fram fer þessa dagana er sinnt m.a. á þessum þotum. Þess má geta að uppgefinn hámarkshraði þessara þotna er 2.472 km/klst,“ segir í færslunni.