Staðalmyndir um konur og karla virðast ráða miklu um námsval ungs fólks og það hafa aftur áhrif á starfsval þegar að atvinnuþátttöku kemur. Þetta er mat aðgerðarhóps á vegum félagsmálaráðherra sem vinnur að skýrslu um verkefni sem snúa að bættum launarannsóknum, innleiðingu jafnlaunastaðals og leiðum til að draga úr kynskiptingu starfa á vinnumarkaði. Hópurinn hefur nú skilað vinnu- og áfangaskýrslu.
Í skýrslunni kemur m.a. fram að þrátt fyrir miklar breytingar á liðnum áratugum sé íslenskur vinnumarkaður enn mjög kynskiptur og er meðal annars bent á að hlutfall karla af vinnuafli í umönnunarstörfum sé mun lægra hér en annars staðar á Norðurlöndum. Starfsstéttir þar sem annað kynið er í miklum meiri hluta (2/3 hlutar starfsfólks) eru kallaðar kvenna- eða karlastéttir. Samkvæmt þessu telst skrifstofufólk og kennarar í leik-, grunn- og framhaldsskólum hér á landi til kvennastétta en véla- og vélgæslufólks til karlastétta. Jafnari kynjaskiptingu er að finna hjá sérfræðingum, sérmenntuðu starfsfólki og ósérhæfðu starfsfólki. Að jafnaði eru laun lægri í kvennastéttum en í karlastéttum.
Ýmsar áhugaverðar staðreyndir um stöðu jafnréttismála eru dregnar fram í skýrslu aðgerðahópsins. Þar má til dæmis sjá að konur eru meirihluti nemenda á öllum skólastigum nema svokölluðu viðbótarstigi sem felur í sér starfsnám á mörkum framhaldsskóla- og háskólastigs. Árið 2012 voru konur 52% nemenda á framhaldsskólastigi, 38% nemenda á viðbótarstigi, 62,5% nemenda á háskólastigi og 62,4% nemenda á doktorsstigi. Konur eru í meirihluta þeirra sem útskrifast alls staðar á Norðurlöndunum en á Íslandi er hlutfallið þó áberandi hæst eða tæp 67%.
Í skýrslunni er fjallað um nýlegar kannanir og rannsóknir á kynbundnum launamun sem gerðar hafa verið hér á landi en byggjast á ólíkri aðferðafræði. Niðurstöðurnar hafa sýnt mun frá 7–18% eftir því hvernig er mælt og til hvaða hópa og svæða mælingarnar ná til. Markmið skýrsluhöfunda er að finna mæliaðferðir og að samstarfsaðilar komi sér saman um skýribreytur sem nýta má fyrir nýja og víðtæka launarannsókn sem er ætlað að ná jafnt til almenna og opinbera vinnumarkaðarins. Aðgerðahópurinn ráðgerir að launarannsóknin verði framkvæmd á árinu 2014 en hópurinn mun einnig standa fyrir gerð rannsóknarskýrslu sem gefi heildstæða mynd af stöðu kvenna og karla á vinnumarkaði.
Skýrsluna í heild má nálgast hér.