„Ég held ... almennt séð og vil trúa því að þingmenn hafi ekki gert sér grein fyrir hversu langt er farið inn á friðhelgi einkalífs öryrkja þegar þeir samþykktu lögin um almannatryggingar. Því kalla ég eftir umræðum um málið á yfirvegaðan hátt og ég vil biðjast velvirðingar á því að hafa ekki haft tök á að vita nákvæmlega um hvað málið snerist þegar ég greiddi því atkvæði.“
Þetta sagði Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Pírata, á Alþingi í dag í umræðum um störf þingsins þar sem hún gerði að umtalsefni sínu breytingar á lögum um almannatryggingar sem tóku gildi 1. febrúar síðastliðinn. Sagði hún þingmenn Pírata ætla að óska eftir sérstökum umræðum um breytingarnar þar sem lögð væri áhersla á það hvaða áhrif þær hefðu á umbjóðendur Tryggingastofnunar ríkisins.
„Það sem ég hef tekið eftir í umræðunni undanfarið, eftir að málið komst loks í fréttirnar og fólk fékk skilning á því hvaða áhrif lögin hafa á friðhelgi einkalífs öryrkja, er að það er ljóst að við þurfum að gera eitthvað til þess að tryggja að fólk búi ekki við mikið óöryggi og vanlíðan út af lagasetningu. Ég hefði aldrei samþykkt þessi lög hefði ég vitað hve langt væri farið þar inn á friðhelgi einkalífs öryrkja. Við vitum að það eru stjórnarskrárvarin réttindi að njóta friðhelgi einkalífsins hvort sem maður er öryrki, fátækt gamalmenni eða sjúklingur eða hvítflibbi,“ sagði hún ennfremur.