Hagvaxtarspá Seðlabanka Íslands er hærri en flestir bjuggust við og hafa aðgerðir stjórnvalda í tengslum við skuldaleiðréttingar þar mikið að segja. Þrátt fyrir að jákvæðar horfur séu víða í hagkerfinu eru þó jafnframt efasemdir til staðar.
Mbl.is ræddi við þau Gylfa Magnússon, Gylfa Arnbjörnsson og Regínu Bjarnadóttur um horfur í efnahagslífinu í kjölfar nýrrar hagvaxtarspár Seðlabanka Íslands.